Orkuveitan, ON, nýtt sölufyritæki tekur til starfa samkvæmt lögum.

Besta mál að ég held nema þarna er ráðinn sem framkvæmdarstjóri Páll Erland. Þessi maður kom inn í Orkuveituna 2001 og var þar ráðinn sem einn af sviðstjórunum. Hefur verið einn af æðstu stjórnendum OR og á að mínu mati stóran þátt í þeirri niðurlægingu sem OR hefur þurft að bera. 216 milljarðar sem skuld OR er í dag, fyrirtækið eignarlaust og rúið öllu trausti en samt er þessi maður ráðinn sem framkvæmdarstjóri. Mér er lífsins ómögulegt að skilja svona hluti, allt í kalda kol og þessi maður ráðinn eða skipaður, ekki var þetta auglýst.
mbl.is Virkjanir og raforkusala sett „á ON“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Er einhver sem getur skýrt út tilganginn með þessari aðgerð?  Ég hélt að OR væri fullfær um að reka þessi orkuver.  Verður byggð svipuð höll og OR er í utan um ON  Einhvernvegin læðist að mér sá grunur að þetta sé aðgerð til þess ætluð að komast dýpra í veski okkar viðskiptavina OR

Kjartan Sigurgeirsson, 31.12.2013 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband